Já var það ekki
Myndir
Myndasíðan mín
Eldri færslur!!!!
30.10.2007 19:38:21 / Asi

gdhdgh

Farinn á sjó.

asgrimur@inmobil.net


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 21:52:00 / Asi

hættur

Jæja.......soltið duglegur að blogga.........ætla lika að fara að hætta þessu rugli...........blogg er fyrir homma og kellingar..... ekki svona tussu heita allvöru karlmenn eins og mig.

 

étiði skít

bezz


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.08.2007 18:48:30 / Asi

mjhgcf

Kominn í land.....er í fríi þangað til miðjan okt.....gaman af því.....

 

bezz 


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.06.2007 00:03:46 / Asi

Yfir sorgum er best að þegja

Eruði að djóka með að kommenta ekki?....... ég endaði síðasta blogg á því að segjast ætla að fyrirfara mér......og ég fæ ekki eitt einasta komment um að sleppa því.....já eða drífa í því.... þið þurfið aldeilis að hífa upp um ykkur brækurnar gott fólk og fara að kommenta......... annars hvað spurjiði ykkur....... annars ekki neitt bara....

Föstudaxkveld á vopnafirði....... það er ekkert hægt að segja um það...... nema að bærinn er steindauður........ þetta minnir mig á afhverju ég var að flytja héðan........... ....

En síðasta nótt hjá mér kemst í bækurnar yfir ógeðslegustu nótt sem ég hef upplifað..........svaf ekki í eina einustu mínutu.... hún einkenndist af hósta....og hósta.....og hósta.....og einni eða tveim ælum....og meiri hósta.......... kanski maður ætti að minnka reykingarnar........þó svo að það sé hrikalega töff að reykja þá er ekkert voðalega töff að hanga einn inni herbergi og hósta úr sér lífið ........æ jújú það er smá töff......

Ég held að ég neyðist til að skella mér suður á morgun..... .... jamm það væri ekki óvitlaust...

Ég er búinn að taka af mér 18 kílo síðan um jólin..... mér finst það nokkuð gott þar sem ég hef ekki einusinni verið í megrun....bara smá aðhaldi...... ég ætla að taka af mér 15 kilo í viðbót......þá á ég bara 34 kilo eftir í kjörþyngd.......

En ég er samt hnullafeitur ennþá.......sem er fint...... ..... Ich bin eine feitebollen.................

Jæja...ég má ekkert vera að þessu.......þarf að fara að taka tannstöngulinn út úr þvagrásinni á mér......hann er búinn að valda mér óþægilegum verk síðustu daga...... þetta var ekkert jafn sniðugt og ég hélt að þetta væri þegar ég tróð honum þangað...

 

Bezz


» 9 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 22:33:49 / Asi

og nú falla af trjánum blöð

Var að fatta að það vill greinilega engin lesa bloggið mitt.... á flestum öðrum bloggsíðum er rekið á eftir fólki að fara að hripa eikkað niður......en þetta tíðkast ekki á þessari síðu.... skil þetta ekki allveg og er nokk sama.......étiði bara saur úr gaur sem hafði mök við maur bak við staur.

En ég er allavega kominn í frí og er búinn að vera í því síðan 2 júni.....þannig að það styttist í að sumarið verði á enda hjá mér, því júlí og ágúst fara í að hanga á sjónum og draga björg í bú......

Síðasti túr var hel nettur allveg.....mokveiði og bullandi tekjur..... var með 300 kall á viku......sem er andskoti gott..

Ég er fluttur inn í Hrísrimann.......búinn að kaupa mér innbú... eða svona það allra nauðsynlegasta......og verð ég að viðurkenna það að ég hefði allveg getað farið ódýrari leið í kaupunum .........en ég er sáttur......

Er kominn á vopnafjörðinn.....er bara að hitta fólkið og ná í allt mitt hafurtask......veit ekki hvenær ég ætla aftur suður..... það er óráðið......gæti verið að maður skelli sér á laugardaginn eða sunnudaginn..........svo er allveg inni myndinni að eyða laugardaxkveldinu á akureyri......en það kemur allt í ljós.... ég þyrfti reyndar líka að fara í ljós...... ég er það hvítur að ég var úrskurðaður látinn í dag....

Langar að minnast aðeins á helvítis lögguna.....en ætla bara að sleppa því að tala eikkað illa um andskotans löggufíbblin.....

Jæja ég ætla að fara að fyrirfara mér

Bezz


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 11:41:25 / Asi

habblaha

Jæja

Kom í land í gær eftir hrikalega lélegan túr.... engin veiði og samhliða því engar tekjur..... en svona er sjómennskan.... það eru ekki alltaf jólin..

Fer aftur út á sjó á fimmtudagskvöld.... verðum til 2 juni... svo ætla ég að vona að ég komist juni túrinn líka og verð þá í fríi í júli.....enda fint að taka frí þá...þá verð ég lika búinn að róa í 14 vikur...það er mikið meira en nóg.....

 

annars hef ég ekkert að segja.....

Bezz


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 14:31:40 / Asi

Þú veist að ég uni ekki í landi, en verklaginn er ég á sjó

Jæja þá ætla ég að hripa einhvurju niður svona áður en ég held á hafið bláa í 25 daga......verður bara stuttur túr núna.... eða það er allavega talað um það......vona það bara því samkvæmt minni talningu þá kem ég í land aftur um 11 mai, sem þýðir að ég verð í landi yfir júróvision og kosninga helgina..... það er eiginlega ágætis uppskrift af fylleríi.........reyndar er ég orðinn svo hrikalega slakur í drykkjunni.....sem er bara gott.

Fór í bæinn í gærkveldi..... ég og Mannsi skelltum okkur á rúntinn og svo kíktum við á nokkra staði, þetta var í fyrsta skipti sem við 2 vorum að þræða staði bæjarins á laugardaxkveldi edrú....... þetta var öðruvísi..... en allveg ljómandi gott bara......fengum okkur bara kaffi á stöðunum og leifðum kvenfólkinu að berja okkur auga (berja úr okkur auga?)

Svo þegar ég kem í land þá verður íbúðin orðin mín, sem verður geggjað.....þannig að þá fer maður að kaupa sér innbú..... hlakka frekar mikið til þess, sérstaklega af því að maður á peninga, aldrei þessu vant........en ég verð líka að vera búinn að fá fast pláss áður en ég fer að spreða peningum, reikna með því að mér verði boðið það núna á næstu dögum....... það er allavega á hreinu að það verður 42" plasma í stofunni..... annað er ekki komið á hreint........en þetta verður gaman....

En já......mig langar að biðja ykkur sem eruð að kíkja á síðuna hjá mér að skrifa í gestabókina áður en það verði komið ár síðan síðast var skrifað í hana........ ekki vera feimin við að skrifa eikkað uppbyggilegt og fallegt til mín..... maður þarf alltaf á svoleiðis hlutum að halda......

Vill minna aftur á síðuna hjá Móðir Jörð og Faðir Vor..... kallinn er að fara hamförum í að dæla inn myndum á síðuna................ www.123.is/mavahlid

E-mailið mitt á sjónum er asgrimur@inmobil.net........ endilega senda kallinum póst...... helst ekki af hotmail...það er með einhvur leiðindi við mig...

Jæja þá er best að fara að klára það sem ég þarf að gera áður en ég fer á sjóinn.....

Ég kveð með mynd af kynþokkanum.

Bezz


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.04.2007 22:44:25 / Asi

habblaha

Góða kvöldið gott fólk......

Þá er það laugardaxkveld í höfuðborgini....... bara rólegt hjá mér......tók aðeins á því í gær og verð bara rólegur í kvöld....enda innan við sólahringur þangað til maður fer aftur á hafið......njóta tímanns sem maður er í landi :)

Hef ekkert annað að segja...... hendi einhvurju hérna inn á morgun áður en ég fer á sjó.

Vill benda ykkur á heimasíðuna hjá foreldrum mínum, en þau eiga gistiheimili á Vopnafirði. svo skemmir ekki fyrir að þarna eru margar myndir af mér, sem hlýtur að teljast góð auglýsing fyrir gistiheimilið..... kæmi mér ekki á óvart að ég yrði andlitið útávið í starfsemi staðarins :)

http://www.123.is/mavahlid

 

Bezz í bili svili á kili


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 13:57:42 / Asi

Sjaldan veldur einn ef tveir deila

Jæja þá er maður kominn í land eftir rúmlega 4 vikna túr, kom í land á miðvikudag og er að fara aftur út á sunnudag..

Þetta var allveg ljómandi góður mánuður, brjáluð vinna og fínar tekjur......topp mannskapur og fínasta aðstaða um borð, þá aðalega klefarnir og allt innanstokks..... millidekkið er ekkert til að hrópa mörgumsinnum húrra fyrir en þegar maður hefur verið á Bretting þá er hvaða millidekk sem er allveg ljómandi gott :)

Það er ljósabekkur,tækjasalur og sauna um borð sem er ekkert slæmt, ég notaði það nú ekki neitt í túrnum enda ekki tími til þess vegna vinnu, en það verður kanski einhvur tími í þeim næsta.....fínt að skella sér aðeins í tækin eftir vaktina og svo ljós á eftir......nú á líka að taka af sér slatta mikið af kílóum og ná sér í smá lit.....maður er það hvítur að ég gæti verið úrskurðaður látinn.........um að gera að notfæra sér þessa aðstöðu...kostar ekki nema 100 kall ljósatíminn, sem verður að teljast ágætis díll.........

Tók af mér 12 kíló í túrnum....sem flokkast sem 4 kíló á viku, sem er örugglega ekkert  sniðugt..... en þegar ég passa ekki lengur í buxurnar mínar þá verður það ansi sniðugt :)

Jamm það er ekki laust við að maður sé ánægður þessa dagana, kominn í góða vinnu með góðum tekjum, er að fá afhenta fyrstu íbúðina mína, flytja í höfuðborgina, á góða vini og fjölskyldu, er að hríðleggja af og verða huggulegur......já og svo á ég líka þennann fína bíl..........ég óska hér með eftir kvennmanni sem er til í kallinn.............get borgað með mér ef það er eikkað vandamál...

En maður er reyndar langt í frá að vera ánægður, hörmulegt slys á miðvikudaginn þegar góður maður lést, ég ætla reyndar ekkert að tjá mig um það hér, þetta stendur manni svo nærri að það er ekki gáfulegt að blogga um það.

Skrifa kanski eikkað seinna í dag....nóg að gera á stóru heimili.

Bezz


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 22:05:37 / Asi

Á sjó!!!!

Ég fer ekki á sleppuna eins og ég var búinn að skrifa hérna fyrr í dag........hálftíma eftir að ég bloggaði þá hringdi skipperinn af Helgu Maríu í mig og bað mig að koma út klukkan 23:00 annaðkveld......ég get bara ekki sleppt því.....

Þannig að núna er ég kominn á akureyri til bróa og ætla að keyra suður í fyrramálið......

Ég blogga semsagt ekkert meira næsta mánuðinn...... ég veit ekki hvernig verður með símasamband...... en ég veit að ég fæ e-mail þannig að það verður kanski bara allt í tölvutæku formi :) Ég fæ láru systur til að henda inn e-mailinu mínu hérna á síðuna þegar ég fæ það í hendurnar............. en eins og ykkur sé ekki sama........

Allavega....ég bið ykkur vel að lifa....

og kveð með mynd af nýja heimilinu.

Bezz


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 12:47:08 / Asi

Sleppa sleppunni........nei það held ég ekki

Nei nú líst mér ekki á þetta......ég er byrjaður að blogga á hverjum degi......en er á meðan er......

Ég vill byrja á að þakka guði vini mínum fyrir veðrið sem hann ætlar að gefa okkur á morgun......allavega part úr degi, en það er líka nóg til að geta lagt trossunar....... þannig að vertíðin er að fara að byrja hjá okkur feðgum.... og til að gefa ykkur smá mynd af því hvað við feðganir erum að fara að gera þá ætla ég að henda inn nokkrum myndum...

Byrjum á því sem skiptir öllu máli og það er blessuð grásleppan.

Ég hef lært listina að kyssa af grásleppunni..... og eins og máltækið segir "Grásleppan er eins og kvennmaður, bara ívið kynþokkafyllri"

Svona liggja þær svo fyrir manni, vonandi í meira magni bara, ég greiði þær úr netinu og hendi þeim til hliðar.. menn eru að hafa það á orði að ég sé sá sneggsti í að greiða úr og hefuð hann faðir minn gefið mér gælunafnið "Vélin" en þar á hann við að ég sé sneggri en fullkomnasta vél.

En grásleppan er ekki alltaf dans á rósum því annarsslagið koma upp leiðinda kvikindi sem þarf að díla við, eins og t.d. þessi hlýri hér sem var bara með leiðindi og lenti ég í að hnakkrífast við hann eins og hér sést.

Ég reifst við hann í smá stund þangað til að ég fattaði að ég gat bara hent honum í sjóinn, sem og ég gerði...... já það borgar sig ekki að vera með stæla við mig!!!!

En það eru ekki bara leiðindaskeppnur sem koma um borð, það koma nú annaðslagið skeppnur sem maður getur ekki annað en gengið í föðurstað, eins og ég gerði við þetta selskvikindi, nú veit ég hvernig móður líður að fá barnið sitt í fangið í fyrsta skiptið.

Ef þetta er ekki ást, þá spyr ég hvað er ást?

Jæja þetta sýnir nú bara engan vegin hvað það er sem við gerum á grásleppunni.....en ykkur kemur það svosem ekkert við heldur, þið getið þá bara hringt í mig ef þið hafið einhvurn áhuga á að vita það......og ef þið hafið brennandi áhuga á að vita hvað er gert á grásleppuveiðum þá er mjög líklega eikkað að ykkur og þið ættuð frekar að hringja til einhvurs sem getur aðstoðað ykkur í veikindunum...

Jæja ég þarf að fara að maka mig upp úr smjöri og tómatsósu, það á víst að vera svo gott fyrir húðina..

Bezz

 

 

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 11:53:46 / Asi

Angela ó Angela

Þá er kominn laugardagur......og væntanlega verður mikið um að vera hérna á vopnafirði þegar líður að kvöldi......bara svona svipað og í gærkvöldi......föstudagskvöldin eru engu lík hér bæ, þvílík og önnur eins stemning.........ég tek það fram að þetta er argasta kaldhæðni....

En þetta verður svosem ágætisdagur og það er bara vegna þess að það eru 2 leikir i dag sem hægt verður að horfa á ..... Man Utd er að keppa i bikarnum klukkan 5 og svo er það Barca- Real Madrid klukkan 9 í kveld eða tuttuguogeitthundrað eins og við segjum í hernum....................Það er frekar sorglegt að það eina sem getur bjargað laugardegi eru fótboltaleikir..... en svona er þetta samt hjá mér......og verð ég bara að vel við una.

Ég er búinn að hringja um borð í nokkra togara að leita mér að plássi....ekkert svar fengið en það voru 2 skipstjórar sem tóku vel í þetta og er ég að vonast eftir plássi á öðrumhvorum togurunum.....þetta eru bæði allveg topppláss þannig að það skiptir mig engu hvor dallurinn það verði........ annarsvegar er það Vigri Re 71 og hinsvegar Helga maría Ak 16.

Þetta er vigri.

Og þetta er Helga María.

Og nú er bara að vona það besta....... þessi pláss mundu allavega redda afborgunum hjá mér..... og það er nú það sem málið snýst um næstu árin :)

Sjómennskan er lífsins dans

og verður þannig að sinni

Vonandi verður kvennafans

Í reiðhöllinni minni.

Smá vísa svona í tilefni dagsins......hún er kanski ekkert rosalega góð en þetta er það besta sem þið fáið frá mér í bili.

En annars er ekkert að frétta......er bara að vona að við förum að byrja á sleppunni.......þarf að fara að eignast einhvurn pening.......

Jæja ég þarf að fara í blautbolskeppni við móður mína.

Bezz


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 16:52:46 / Asi

hvað?

Ég hef ekkert að segja........

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 11:48:42 / Asi

æ....kominn heim

Jæja þá er ég kominn til vopnafjarðar og er þetta að ég held í fyrsta skipti sem mig langaði ekki neitt til að koma heim...

Ég hélt að ég væri svo gallharður vopnfirðingur að ég mundi alltaf vera hérna......en eikkað kom nú vit í kallinn í þessari mánaðarferð fyrir sunnan.......ég get ekki fyrir mitt litla líf langað að búa hérna......ég neyðist til að vera hérna í 2 mánuði.....það eina jákvæða við þessa 2 mánuði er það að ég er að fara á grásleppu........enda ætla ég helst að nota hvert það tækifæri sem gefst til að skreppa i burtu á vertíðinni...... þó svo að ég vona peningalega séð að það verði hægt að róa hvern dag þá fer ég um leið og það kemur garenteruð bræla......

Þarf að fara í bæinn eftir sonna 2 vikur til að ganga frá kaupunum ef að ég fæ öll lán.......það gæti verið að það verði bara komið að morgni og farið aftur að kveldi......en það kemur bara í ljós..........

En ég hef akkúrat ekkert skemmtilegt að segja, enda er þetta enginn gleðidagur.......

En hérna koma úrslitin úr skoðanakönnunni sem er búin að vera i marga mánuði.....



 

Jamm...þetta var ágætt....en það er komin ný könnun fíbblin ykkar...

Bezz


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 13:15:22 / Asi

Blankur næstu 40 árin

Jæja.....þá er kallinn búinn að skrifa undir kaupsamninginn.... og þá er bara að fara að vesenast í lánunum...... hef nú ekki miklar áhyggjur af því.........en allavega......þá fæ ég íbúðina afhenta 1 mai......sem er frábært....... hérna eru svo nokkrar myndir af reiðhöllinni.

Þar hafiði það.......

En ég hef voða lítið að segja nema þetta.......

Fer heim á þriðjudag og kem síðan aftur skot túr eftir 2 vikur til að ganga allveg frá kaupunum........svo yfirgef ég vopnafjörð 1 mai............

Jæja ég þarf að fara að þrýsta hinu eistanu niður

Bezz


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8